Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Lommel í kvöld sem mætti Lierse Kempenzonen í þriðju umferð í B-deildinni í Belgíu.
Fyrri hálfleikurinn var fjörugur og var staðan 2-2 þegar að honum lauk. Kolbeinn fékk gult spjald á 28. mínútu leiksins.
Kolbeinn fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 89. mínútu og þurfti heimamenn að spilað síðustu mínúturnar manni færri. Það virtist hafa gefið þeim byr undir báða vængi en það var enginn annar en Jonathan Hendrickx sem skoraði sigurmarkið fyrir Lommel í uppbótartíma.
Þetta var fyrsti sigur Lommel á tímabilinu en liðið er í fjórða sæti með fjögur stig eftir þrjá leiki.
Athugasemdir