Diego Godin er á förum frá Inter eftir aðeins eitt tímabil hjá ítalska úrvalsdeildarfélaginu.
Godin spilaði 36 leiki í öllum keppnum og skoraði tvö mörk eftir félagaskipti sín frá Atletico Madrid. Inter telur sig hins vegar ekki hafa not fyrir Godin lengur.
Godín er goðsögn hjá Atletico Madrid þar sem hann lék 289 leiki á níu tímabilum. Hann vann átta titla með Madrídarliðinu, þar á meðal La Liga 2014.
Hinn 34 ára gamli Godin er orðaður við Cagliari, sem er einnig í ítölsku úrvalsdeildinni, og Rennes í Frakklandi.
Fabrizio Romano, sem veit allt þegar kemur að félagaskiptamarkaðnum, segir að Cagliari sé komið langt í viðræðum við Inter um miðvörðinn sterka.
Cagliari are in advanced talks with Inter to sign Diego Godin. The agreement is still to be reached between the two clubs and on personal terms - but talks on. Also Rennes asked for Godin few days ago. He’s gonna leave Inter. 🔴🇺🇾 @SkySport #Godin #Inter #Cagliari #transfers
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 10, 2020
Athugasemdir