Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 11. september 2020 15:15
Magnús Már Einarsson
Klopp ekki tekið eftir grunsamlegum mannaferðum
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segist ekki hafa séð neinar grunsamlegar mannaferðir í kringum æfingasvæði félagsins í þessari viku.

Liverpool fær nýliða Leeds í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni klukkan 16:30 á morgun.

Leeds var sektað um 200 þúsund pund á þarsíðasta tímabili eftir að Marcelo Bielsa, stjóri liðsins, viðurkenndi að hann hefði sent njósnara á æfingasvæði Derby til að njósna um æfingar félagsins.

„Við sáum engar grunsamlegar mannaferðir í kringum æfingasvæðið í þessari viku svo það er allt í góðu," sagði Klopp á fréttamannafundi í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner