Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 11. september 2020 23:15
Aksentije Milisic
Valdimar á leið til Strömgodset
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Valdimar Þór Ingimundarson, leikmaður Fylkis, er á leiðinni til Strømgodset í Noregi. Þessu greinir Hrafnkell Freyr Ágústsson frá á Twitter nú í kvöld.

Valdimar hefur verið orðaður burt frá Fylki og út fyrir landsteinana undanfarnar vikur og nú virðist það vera að ganga í gegn.

Valdimar hefur verið frábær í liði Fylkis á þessu tímabili en hann hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar það sem af er. Hann hefur skorað átta deildarmörk.

Hjá Strømgodset hittir hann Ara Leifsson sem er á mála hjá liðinu. Strømgodset er í ellefta sæti í efstu deild í Noregi eftir sextán umferðir.


Athugasemdir
banner
banner
banner