Kristall sáttur við að yfirgefa Rosenborg - „Það kom margt upp"
Auglýsing

Kristall á æfingunni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skipti nýverið yfir til SönderjyskE.

Mynd: Sönderjyske

Kristall á æfingunni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður mjög vel. Það er komið ár síðan ég spilaði hérna síðast þannig að ég er mjög spenntur," segir Kristall Máni Ingason, leikmaður SönderjyskE og U21 landsliðsins, í samtali við Fótbolta.net.
Kristall er mættur aftur í Víkina þar sem hann mun spila með U21 landsliðinu gegn Tékklandi á morgun. Það er fyrsti leikurinn í undankeppni Evrópumótsins.

„Við ætlum að taka þrjú stig á heimavellinum okkar og ég er mjög spenntur. Við eigum okkur draum og það er að fara á EM. Við ætlum að byrja það á morgun. Stemningin er mjög góð í hópnum. Ég kom inn í hópinn eftir leikinn á móti Finnlandi. Það er sterk og góð orka í hópnum."
Yfirgaf Rosenborg
Kristall átti erfitt uppdráttar með Rosenborg í Noregi en hann skipti í sumar yfir til SönderjyskE í Danmörku.
„Ég myndi segja að þetta hafi gengið vonum framar," segir Kristall um byrjunina í Danmörku. „Þetta er mjög fínt lið sem við erum með og í mjög fínni deild. Við ætlum okkur upp, það er svoleiðis."
„Stuðningsmennirnir eru ánægðir kallinn og það er alltaf gott þegar þeir eru sáttir. Nú er það bara að halda áfram og gefa enn meira í."
Kristall segist hafa verið sáttur við það að yfirgefa Rosenborg. „Ég var búinn að langa fara í smá tíma. Þetta kom upp og auðvitað kýli ég á það. Ég þurfti að taka sénsinn. Þetta var ekkert að fara að vera verra."
„Þetta er ekki jafnstór klúbbur fyrir Rosenborg en þetta var betra fyrir mig. Ég tók eitt skref til baka en samt í hörkugott lið. Við ætlum okkur upp."
Af hverju vildi hann fara frá Rosenborg?
„Það kom margt upp. Mér fannst leikstíllinn ekki henta mér og svo var það þessi leikaraskapur, þá þurftu menn að skoða í kringum sig. Maður þurfti að finna út af hverju maður er í þessu og hver maður er sem leikmaður. Það er allt að smella saman í Danmörku," sagði Kristall en hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan en hann býst við að skora í Víkinni á morgun.