Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 11. október 2019 20:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Sara Björk gerði tvö af fimm mörkum Wolfsburg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk þegar Wolfsburg burstaði Köln í úrvalsdeild kvenna í Þýskalandi.

Sara kom Wolfsburg á bragðið á 11. mínútu og gerði hún annað mark sitt stuttu fyrir leikhlé. Það var þriðja mark þýska stórliðsins; staðan 3-0 í hálfleik.

Wolfsburg bætti við tveimur mörkum til viðbótar í seinni hálfleik og lokatölur 5-0.

Sara hefur skorað þrjú mörk í sex leikjum í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Wolfsburg, deildarmeistarar síðustu þriggja ára, eru á toppnum í Þýskalandi með fullt hús stiga eftir sex leiki.


Athugasemdir
banner
banner
banner