Rúnar Alex: Kærkomið að sýna bæði fyrir landi og þjóð að við getum þetta
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson var til viðtals á hóteli landsliðsins í dag. Hann ræddi um komandi landsleik gegn Lúxemborg og ýmislegt annað í viðtalinu sem má sjá í heild sinni í spilaranum efst.
„Við erum í smá hefndarhug, spenntur að spila og reyna sækja góð úrslit."
„Vonandi hjálpar veðrið okkur, en það hefur svo sem bæði lið. Við erum kannski vanari að spila og æfa í þessum kulda."
„Við vitum nokkurn veginn hvað við viljum gera, erum með okkar leikskipulag og það breytist ekkert ekki mikið milli leikja; kannski áherslubreytingar sem við eigum eftir að fara nánar í. Þetta ætti ekki að vera mikil breyting."
Rúnar var spurður hvort að leikurinn í Lúxemborg sæti í mönnum.
„Nei, það má ekki í fótbolta. Maður verður bara reyna gleyma þessum hlutum eins fljótt og hægt er, bara læra af þeim þannig að þetta endurtaki sig ekki."
Kærkominn sigur gegn sterkari andstæðingi en sigrarnir þar á undan
Sigur vannst í seinni leik síðasta landsleikjaglugga, heimasigur gegn Bosníu & Hersegóvínu þar sem Alfreð Finnbogason skoraði í lokin.
„Það var geggjað, þetta var fyrsti sigurinn okkar á móti sterkari andstæðing heldur en síðustu sigrar á undan voru. Það var mjög kærkomið að sýna bæði fyrir land og þjóð, og okkur sjálfum, að við getum þetta. Þetta býr í okkur ennþá, það er bara að reyna byggja ofan á þetta."
Ekki ómögulegt að ná 2. sætinu
Tvær leiðir eru fyrir Ísland inn á EM næsta sumar. Liðið þarf að komast upp í 2. sæti riðilsins í undankeppninni eða fara í gegnum umspil í mars.
„Ég held það hafi allir ennþá trú á því að við getum náð 2. sætinu. Það er mikilvægt fyrir okkur að ná góðum frammistöðum, fara alltaf með sjálfstraust inn í næsta leik sem er bara undirbúningur fyrir mars umspilið. En ef við getum verið búnir að klára þetta fyrir það, þá væri það snilld. Það er ekkert ómögulegt, við eigum að geta náð í sex stig núna og með góðum glugga í nóvember þá sjáum við bara hvert það fer með okkur. Næsti leikur er mikilvægastur."
Gæði sem hverfa ekki
Hvernig er að sjá Gylfa Sigurðsson á landsliðsæfingu?
„Það er ógeðslega skemmtilegt, geggjað að fá hann aftur. Í stuttu spili, halda bolta, maður sér gæðin sem hann er með. Það er eitthvað sem maður missir ekki. Ógeðslega gaman að sjá hann aftur."
No comment
Arnór Ingvi talaði um að Gylfi hefði klínt boltanum upp í samskeytin. Varst þú í markinu?
„Nei, ég fékk frí í þeim leik. Sá bolti söng í samskeytunum. Ég veit það ekki, no comment," sagði Rúnar og brosti þegar hann var spurður hvort hann hefði varið skotið.