Fotbolti.net
12.01.22 - 12:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Máni Austmann á leið í FH

Máni Austmann

Máni Austmann

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Máni Austmann Hilmarsson er á leið í FH samkvæmt heimildum Arnars Laufdals Arnarssonar, þáttarstjórnanda Ungstirnanna hér á Fótbolti.net.

Máni kemur frá Leikni Reykjavík þar sem hann hefur spilað undanfarin ár. Máni er uppalinn í Stjörnunni en fór ungur að árum til FCK í Danmörku.
Samningur Mána við Leikni rann út síðasta haust og því kemur hann á frjálsri sölu til FH.

Máni er 23 ára kantmaður sem skoraði eitt mark í sautján leikjum á síðasta tímabili.

Sjá einnig:
Yfirgaf FCK en var ekki tilbúinn - Fann sig loksins hjá Leikni

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.