18.10.26
UTAN VALLAR: FC Köbenhavn sett á sölu
SÆVAR ÞÓR SVEINSSON
Nú í vikunni bárust fréttir frá Danmörku þess efnis að FC Köbenhavn væri mögulega falt fyrir rétta upphæð. Sigursælasta lið Danmerkur er í eigu Parken Sports & Entertainment sem er skráð í dönsku kauphöllina. Eignarsafn fjárfestingafélagsins samanstendur af FC Köbenhavn fótboltaliðinu, Parken fótboltavellinum og þeim skrifstofurýmum sem fylgja því, og svo einnig Lalandia fjölskyldugarðurinn. Í tilkynningu til kauphallarinnar síðasta þriðjudag var greint frá því að Parken Sports & Entertainment hefði ráðið Tifosy Capital & Advisory ráðgjafarstofuna til þess að kanna möguleikann á sölu á fótboltaliðinu. Í þessari grein verður rýnt í ársreikninga FC Köbenhavn síðustu árin og velt því upp hvað mögulegt kaupverð gæti verið.

