Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 12. febrúar 2021 19:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Danmörk: Elías Rafn lék ekki í tapi vegna meiðsla
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viborg 4 - 0 Fredericia

Viborg vann öruggan 4-0 sigur á Fredericia í 1. umferð dönsku B-deildarinnar eftir vetrarfrí. Leikurinn var liður í 17. umferð deildarinnar. Staðan var 2-0 í hálfleik og undir lokin bættu heimamenn við tveimur mörkum.

Fyrir áramót hefði þetta verið uppgjör U21 árs landsliðsmarkvarða okkar Íslendinga því Patrik Sigurður Gunnarsson var að láni hjá Viborg fyrir áramót. Hann er nú hjá Silkeborg. Hjá Fredericia er svo Elías Rafn Ólafsson en hann glímir við smávægileg meiðsli og var því ekki með í kvöld.

Elías ætti að vera klár í næstu umferð. Hann er að láni hjá Fredericia frá Midtjylland.

Viborg er nú með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar á Esbjerg sem á leik til góða. Fredericia er í 4. sæti, fjórtán stigum á eftir Viborg.
Athugasemdir
banner
banner