Barcelona taldi sig ekki þurfa á þjónustu Luis Suarez að halda lengur en úrúgvæski sóknarmaðurinn hefur verið frábær með Atletico Madrid á tímabilinu og skorað sextán mörk.
Atletico trónir á toppi deildarinnar og erfitt að sjá að liðið verði stöðvað í titilbaráttunni.
Atletico trónir á toppi deildarinnar og erfitt að sjá að liðið verði stöðvað í titilbaráttunni.
„Þrátt fyrir að vera 34 ára er ég hungraðri en nokkru sinni fyrr. Sóknarmenn nærast á því að skora mörk en ég reyni að hjálpa liðinu. Við erum á jákvæðu striði og mikilvægt að við höldum okkur á því," segir Suarez.
„Maður gerir allt sem maður getur til að hjálpa liðunu en sóknarmenn ná sér ekki á strik nema þeir séu í liði sem gerir vel. Mikilvægast er að liðið sem heild sæki þrjú stig."
Athugasemdir