Fotbolti.net
12.02.23 - 12:40
Ívan Guðjón Baldursson

Dómarasambandið bað Brighton afsökunar

Gleði Estupinan varði ekki lengi eftir að hann setti boltann í netið.

Gleði Estupinan varði ekki lengi eftir að hann setti boltann í netið.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska dómarasambandið hefur beðið Brighton afsökunar á þeim mistökum sem urðu í VAR herberginu þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Crystal Palace í gær.

Brighton var sterkari aðilinn og virtist hafa tekið forystuna í fyrri hálfleik þegar Pervis Estupinan kom boltanum í netið.

Markið var upprunalega dæmt gilt en eftir athugun í VAR herberginu var dæmd rangstaða. John Brooks sá um að teikna rangstöðulínurnar en teiknaði þær frá röngum varnarmanni.

„PGMOL staðfesti í samtali við félagið í gær að alvarleg mistök áttu sér stað þegar mark Pervis Estupinan var dæmt ógilt," sagði talsmaður Brighton meðal annars í dag.

„Rangstöðulínurnar voru rangt teiknaðar og markið hefði með réttu átt að standa. Félagið er mjög vonsvikið með þessi mistök en hefur samþykkt afsökunarbeiðni PGMOL og mun ekki tjá sig frekar um þetta atvik."

Sjá einnig:
Dæmdu mark af Brighton vegna mannlegra mistaka í VAR herberginu

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.