ÍBV fær Caeley Lordemann (Staðfest)

Caeley í leik með Santa Teresa.

Mynd: Getty Images

Caeley í leik með Santa Teresa.

Mynd: Getty Images

ÍBV var að krækja í öflugan miðjumann sem gæti komið til með að styrkja miðju liðsins til muna í sumar.
Sú heitir Caeley Lordemann og er 24 ára gömul. Hún æfði með ÍBV í janúar og er búin að gera eins árs samning við félagið.
Caeley lék með Santa Teresa í efstu deild spænska boltans fyrir tveimur árum og gekk svo í raðir North Carolina Courage í bandarísku deildinni.
Hún fékk ekki tækifæri með aðalliði North Carolina og reynir nú fyrir sér í íslenska boltanum.
Áður en hún hélt í spænska boltann var Caeley í algjöru lykilhlutverki í háskólaliði Colorado State sem náði besta árangri í sögu skólans.
„ÍBV býður Caeley velkomna til liðsins og hlökkum við til að sjá hana klæðast hvítu treyjunni," segir meðal annars í tilkynningu frá ÍBV.




