Þróttur R. fær Margréti Eddu frá KR (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Þróttur R. tókst að krækja í Margréti Eddu Lian Bjarnadóttur sem gerir eins árs samning við félagið.
Margrét er fædd 2002 og uppalin hjá Gróttu og KR. Hún er fjölhæfur leikmaður sem getur sinnt ýmsum stöðum á vellinum.
Hún spilaði aðeins þrjá leiki er KR féll úr Bestu deildinni í fyrra og mun nú reyna fyrir sér með Þrótti.
Þróttur endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar í fyrra eftir að hafa tapað síðustu þremur leikjum deildartímabilsins. Liðið missti þannig af öðru og þriðja sætinu.
Margrét á 9 leiki að baki með KR í efstu deild og 14 í Lengjudeildinni.




