Fotbolti.net
12.04.20 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ljóst hverjir mætast í undanúrslitum Íslandsmótsins í eFótbolta

Lið Fylkis hefur átt góðu gengi að fagna.

Lið Fylkis hefur átt góðu gengi að fagna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Þormar Lárusson, Fylki, Tindur Örvar Örvarsson, Elliða, og Leifur Sævarsson, LFG, hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins í eFótbolta, en leikið er í tölvuleiknum FIFA.
Róbert Daði Sigurþórsson, Fylki, hafði þegar unnið sér inn sæti í undanúrslitunum.

Þess má geta að Fylkir á fjóra af efstu átta leikmönnum mótsins.

Undanúrslitin og úrslitin verða leikin laugardaginn18. apríl og hefst keppni kl. 15:00. Þar mætir annars vegar Róbert Aron og Tindur Örvar og hins vegar Aron Þormar og Leifur.

Hægt verður að fylgjast með útsendingu á Twitch-rás KSÍ.

Heiðar Ægisson, leikmaður Stjörnunnar í Pepsi Max-deildinni, tók þátt á mótinu en féll úr leik í 16-liða úrslitunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.