Fotbolti.net
12.04.21 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Tölfræðin segir að Real Madrid sé líklegast til að hampa titlinum

Luka Modric og Alvaro Odriozola. Það er spenna á Spáni!

Luka Modric og Alvaro Odriozola. Það er spenna á Spáni!

Canon

Mynd: Getty Images

Titilbaráttan í La Liga nálgast suðumark eftir leiki helgarinnar. Atletico Madrid hefur fatast flugið og gerði 1-1 jafntefli gegn Real Betis í gær.

Atletico er þó enn á toppi La Liga, stigi á undan ríkjandi meisturum í Real Madrid lögðu erkifjendurna í Barcelona í El Clasico.

Atletico er með 67 stig, Real 66 stig og Barcelona er með 65 stig.
Tölfræðisíðan The Analyst hefur nú reiknað út að Real Madrid sé líklegast til að standa uppi sem sigurvegari, það er þó hrikalega mjótt á munum.

Líkurnar á að lærisveinar Zinedine Zidane standi uppi sem sigurvegarar eru 34,4%. Möguleikar Barcelona og Atletico eru taldir jafnir, 32,8%.

Það eru átta umferðir eftir af spænsku deildinni en hér að neðan má sjá stöðuna:

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.