12.04.22 - 09:00
Elvar Geir Magnússon
Hvað fær Man Utd með því að ráða Ten Hag?

Erik Ten Hag.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: EPA

Erik Ten Hag.

Mynd: Getty Images
Líklegast er talið að Erik ten Hag, stjóri Ajax, verði næsti stjóri Manchester United. Marcel Van der Kraan, íþróttastjóri De Telegraaf, lýsir Ten Hag sem mjög auðmjúkum persónulega og nútímaþjálfara.
Í grein sem birt er á vef BBC í morgun þá fer Van Der Kraan yfir kosti og mögulega galla sem gætu fylgt ráðningu á Ten Hag á Old Trafford.
Vill vera á æfingasvæðinu en ekki skrifstofunni
„Fjárhagslega er engin hvatning eða þörf á því fyrir hann að fara í eitt af stóru félögum Evrópu á þessum tímapunkti. Hann kemur af mjög ríkri fjölskyldu og faðir hans og bræður eru margmilljónamæringar. Þeir eiga fasteignafélag og önnur fjármálafyrirtæki," segir Van Der Kraan.
Faðir Ten Hag vildi að hann kæmi inn í fyrirtæki sitt en hugur hans hefur alltaf verið á fótboltanum og hann vill frekar starfa á æfingasvæðinu en inni á skrifstofu. Ten Hag þarf ekki að reiða sig á tekjurnar úr fótboltanum og getur því einbeitt sér að því að fylgja sinni sannfæringu og hugmyndafræði þegar kannski aðrir stjórar myndu beygja frá til að halda starfinu.
„Hans fótboltahugsun hefur alltaf verið í líkingu við Pep Guardiola og johan Cruyff. Hann vill sóknarbolta, að liðið sitt sé að skapa hluti á vellinum," segir Van Der Kraan.
Langar æfingar og langir fundir
Taktískt er Ten Hag mjög sterkur og þegar hann starfaði sem þjálfari varaliðs Bayern München 2013-2015 elskaði hann að starfa í nálægð við Pep Guardiola og spjalla við hann um fótbolta.
„Einhverjir leikmenn gætu þótt hann erfiður því líkt og Guardiola þá virðist hann haldinn ákveðinni þráhyggju. Til að ná fram leikstíl eins og hjá Ajax, Total Football, þarf gríðarlega vinnu og marga sóknarsinnaða leikmenn. Hann vill að varnarmenn sínir spili framarlega á vellinum og því fylgir ákveðin áhætta. Það er ákveðið brjálæði að innstilla það inn í leikmenn að hver einasta sending verði að vera rétt, það megi ekki gera mistök. En hann nær vel til leikmanna og allir sem hafa spilað undir honum segjast hafa lært mikið af honum."
Ten Hag er þekktur fyrir að eyða miklum tíma á æfingasvæðinu og hugsa vel um alla leikmenn, líka þá sem eru ekki að komast í hópinn á leikdegi. Þannig vinnur hann sér inn virðingu leikmanna. Í upphafi stjóraferilsins hjá Ajax bárust hinsvegar fréttir um að leikmenn væru ósáttir við langar æfingar og langa fundi.
Vinnur í því að bæta enskukunnáttuna
„Hann er ekki hræddur við það verkefni að taka að sér starfið hjá Manchester United. En hann vill vera í æfingagallanum margar klukkustundir á dag, hann lítur ekki á sig sem skrifstofumann. Þá hefði hann farið að vinna hjá fyrirtæki föður síns. Hann er ekki hrifinn af því að vera mikið í símanum og að ræða við umboðsmenn. Ég hef á tilfinningunni að það sé eitt helsta umræðuefnið varðandi mögulega ráðningu hans. Hann vill væntanlega yfirmann íþróttamála eða aðstoðarmann sem getur séð um þessa hluti," segir Van Der Kraan.
„Ég tel að það yrðu mistök hjá honum að halda að hann þyrfti að starfa sem stjóri eins og talið er hefðbundið í enska boltanum. Hann vill ekki fara inn í Manchester United og halda að hann sé að fara að stýra öllu félaginu. Hann vill einbeita sér að því að gefa félaginu einkenni aftur og hann gerir það best með því að fara í æfingagallann og út á æfingasvæðið."
Tungumálaörðugleikar gætu skapað vandræði fyrir Ten Hag. Honum hefur aldrei liðið neitt sérstaklega vel fyrir framan myndavélar og það gæti verið erfitt fyrir hann að koma sínum skilaboðum fram. Sagt er að hann sé að vinna í því að bæta enskukunnáttu sína.
Hefur misst tvo af sínum bestu vinum
„Ef hann tekur við Manchester United þá mun fólk sem hann vinnur með fljótlega læra að hann er mjög tryggur. Þegar hann byrjaði í akademíu FC Twente fjórtán ára var hann fljótt færður upp í U18 liðið og spilaði í mörg ár með sömu strákunum, flestir þeirra eru enn traustir vinir hans í dag," segir Van Der Kraan.
„En þegar hann var hjá Twente létust tveir af bestu vinum hans, annar þeirra í flugslysi í Súrínam. Andy Scharmin var efnilegur leikmaður sem búist var við að yrði landsliðsmaður Hollands. Hann var valinn í æfingaleik með Súrínam, sem hafði ekki formlegt landslið. Hann ákvað að fara í verkefnið en flugvélin hrapaði og margir í liðinu létust. Hann var einn nánasti vinur Ten Hag, þeir gerðu allt saman. Þetta var mikið áfall í lífi Ten Hag."
„Annar náinn vinur hans tók eigið líf og sá þriðji lenti í alvarlegu slysi. Allir þrír voru taldir eiga bjarta framtíð í fótboltanum. Þetta hafði mikil áhrif á Ten Hag og hann sótti innblástur frá því að vilja ná árangri í því sem vinir hans fengu aldrei tækifæri til. Sorgin við að missa vini sína drífur hann áfram enn í dag."