Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   sun 12. apríl 2026 20:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var hörkuskemmtilegur leikur," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA eftir 2-3 tap gegn Stjörnunni í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í dag.

„Við fáum á okkur ódýrt mark eftir 2-3 mínútur og það sló okkur út af laginu. Stjarnan var betri fyrstu 20-25 mínúturnar. Síðan náum við aðeins að leysa það og mér fannst við smám saman taka yfir leikinn."

Lestu um leikinn: KA 2 -  3 Stjarnan

„Það er mjög svekkjandi sem ég heyri að markið okkar sé löglegt í 1-1. Það er dæmd rangstaða og þeir fara upp og skora 2-0 fljótlega eftir það. Við komum til baka og mér fannst við mjög flottir. Eftir leikinn; við erum með 22 skot gegn tíu, erum með hærra xG og erum með níu horn á móti þremur. Við stóðum okkur mjög vel á móti góðu liði en það er svekkjandi að tapa."

Hallgrímur segir Arnar Þór Stefánsson, dómara, hafa haft góð tök á leiknum en það sé pirrandi ef löglegt mark var tekið af þeim.

„Svona gerist bara, ég nenni ekki að kvarta yfir því. Ég er virkilega ánægður með frammistöðu okkar á móti liði sem er spáð í efstu tveimur sætunum. Ég er ánægður með það en svekktur að fá núll stig."

Allt viðtalið í spilaranum má sjá hér að ofan.
Slapp
banner
banner