12.05.17 - 22:58
Sævar Ólafsson
Jói Kalli: Mjög ánægður með karakterinn sem liðið sýnir
Auglýsing

Jóhannes Karl og HK með fyrsta sigur sumarsins gegn Leikni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari HK var að vonum ánægður eftir dramatískan sigur sinna manna gegn Leikni í kvöld í Kórnum. Um var að ræða fyrsta sigur HK í Inkasso deildinni í sumar \"Fyrsti sigurinn hérna heima - við fengum frábæran stuðning hérna í dag\" svaraði Jói Kalli eftir leik og bætti við; \"Það skiptir máli, en í heildina séð er ég mjög ánægður með karakterinn sem liðið sýnir, að gefast ekki upp, halda áfram alveg fram að lokamínútu - við héldum áfram að pressa þá hátt á vellinum alveg fram í restina á leiknum og það er það sem ég er virkilega sáttur með - karakterinn í liðinu, hópnum öllum og strákunum sem komu inn á.\"
Ágúst Freyr Hallsson kom inn af bekknum undir lok leik og þakkaði pent fyrir sig með frábæru marki sem tryggði HK stigin þrjú \"Áki er náttúrulega frábær skotmaður og hann getur þetta svo sannarlega og sýnir manni það oft á æfingum. Vonandi verða þau bara fleiri - þetta var frábært mark\" bætti Jói svo við augljóslega sáttur við sinn mann.
HK ingar spiluðu annan leikinn í röð 4-4-2 og aðspurður um uppleggið svaraði Jói Kalli: \"Við spiluðum 4-4-2 og ætluðum að fara fram á völlinn og reyna að veiða þá í gildru - að geta pressað það - það heppnaðis. Við hefðum getað refsað þeim ef gæðin hefðu verið kannski verið í síðustu sendingunni, aðeins betri.\"
HK-liðið komst tveimur mörkum yfir en missti forskotið niður. \"Það var óþarfi að fá þessi tvö mörk á sig - en það er náttúrulega eins og það er, við fengum þrjú stig hérna í dag og það skiptir mestu máli,\"<7i> sagði Jói Kalli um þróun leiksins
Aðspurður um yfirvofandi lokun félagsskiptagluggans og hvort HK ætlaði sér einhverja hluti þar svaraði Jói Kalli: \"Við erum að skoða, ef það kemur eitthvað upp sem gæti virkilega styrkt okkur þá gætum við gert eitthvað í því en annars er ég mjög ánægður með hópinn.\"