Helgi Sig: Verður að hafa í huga að við erum að spila á grasvelli
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
<i>„Ég er sáttur við baráttu minna manna og við gefumst aldrei upp og það er mikill karakter í þessu liði. Enn og aftur erum við ekki að koma nógu vel inn í leikina og lendum undir og við fengum það í bakið"</i> sagði Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkis eftir dramatískt jafntefli með marki á lokasekúndum leiksins við KR sem endaði 1 - 1.
„Ég er ánægður með að þó að við séum ekki að byrja leikina vel að þá er mikill karakter og gæði í þessu liði og leikurinn er í 90 mínútur plús, við fengum að kenna á því í síðasta leik á móti ÍA og núna unnum við það til baka þannig að ég er tiltölulega sáttur.
Það gengur kannski erfiðlega í byrjun leikja að verjast pressu en ef þið fylgdust með leiknum í dag að þá var það ekkert mál í seinni hálfleik en auðvitað þurfum við að þora að gera þetta og við þurfum að hafa það í huga að við erum að spila á grasvelli og þótt þetta sé góður grasvöllur að þá er þetta öðruvísi heldur en á gerfigrasinu. Þetta eru þungir vellir og svoleiðis í byrjun móts þannig að það hefur kannski einhver áhrif en aðalatriðið er að við þurfum að vera duglegir að hreyfa okkur án bolta til þess að mennirnir sem eru í vörninni hafi möguleika á að finna þá.
Ég er bæði sáttur og ósáttur við 5 stig eftir þrjá leiki. Það er margt sem við hefðum getað gert betur en það er líka margt sem hefur verið vel gert."