Fotbolti.net
12.05.22 - 07:40
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu mörkin: Inter bikarmeistari eftir frábæran úrslitaleik

Lautaro Martinez með bikarinn.

Lautaro Martinez með bikarinn.

Canon

Mynd: EPA

Inter vann Juventus í frábærum bikarúrslitaleik á Ítalíu í gær en þetta var í fyrsta sinn síðan 2011 sem Inter vinnur bikarinn. Það er einmitt tímabilið sem Juventus spilaði síðast án þess að vinna titil.

„Þetta var góð frammistaða gegn mjög sterkum andstæðingi. Við gerðum vel fyrsta hálftímann en misstum síðan aðeins taktinn. En þetta lið gefst aldrei upp," sagði Simone Inzaghi, stjóri Inter.

Úrslitin réðust í framlengingu en hér að neðan má sjá það helsta úr leiknum.

Juventus 2 - 4 Inter
0-1 Nicoló Barella ('7)
1-1 Alex Sandro ('50)
2-1 Dusan Vlahovic ('52)
2-2 Hakan Calhanoglu ('80, víti)
2-3 Ivan Perisic ('98, víti)
2-4 Ivan Perisic ('102)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.