Fotbolti.net
12.06.13 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Rudi Garcia tekinn við Roma (Staðfest)

Rudi Garcia tekinn við Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rudi Garcia hefur verið staðfestur sem nýr þjálfari Roma. „Hann er þekktur sigurvegari með fótboltaheila,\" segir í tilkynningu frá Roma.
Þessi 49 ára Frakki vann franska meistaratitilinn og bikarinn með Lille 2011. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Roma.

Massimiliano Allegri var fyrsti kostur Roma en hann verður áfram með AC Milan. Roma ræddi við Laurent Blanc og Marcelo Bielsa en á endanum varð Garcia fyrir valinu.

Garcia er þriðju þjálfari Roma á rúmu ári. Zdenek Zeman var rekinn í febrúar og Aurelio Andreazzoli stýrði liðinu út tímabilið.

Auk þess að þjálfa Lille hefur Garcia þjálfað Saint-Etienne, Dijon og Le Mans. Hann aðhyllist sóknarbolta og leikur oftast 4-3-3 og 4-2-3-1.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.