Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 12. júní 2019 18:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ferland Mendy til Real (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur fest kaup á Ferland Mendy frá franska liðinu Lyon.

Mendy skrifar undir sex ára samning hjá Madrídarrisanum, út júnímánuð 2025.

Mendy verður kynntur hjá Real Madrid eftir slétta viku.

Kaupverðið er talað vera um 47 milljónir punda. Mendy er vinstri bakvörður sem hefur leikið þrjá landsleiki fyrir franska landliðið.

Mendy er 24 ára gamall. Hann lék 57 deildarleiki fyrir Lyon og skoraði í þeim tvö mörk.
Athugasemdir
banner