Pepsi Max-deildarlið KA hefur kallað miðjumanninn, Bjarna Aðalsteinsson aftur til sín en Bjarni var lánaður í Magna í byrjun maí mánaðar.
Bjarni hefur spilað vel með liði Magna í Inkasso-deildinni í þennan mánuð sem hann var á láni hjá liðinu. Bjarni hefur tvívegis verið í liði umferðarinnar í Inkasso-deildinni.
Bjarni hefur spilað vel með liði Magna í Inkasso-deildinni í þennan mánuð sem hann var á láni hjá liðinu. Bjarni hefur tvívegis verið í liði umferðarinnar í Inkasso-deildinni.
KA 8. sæti Pepsi Max-deildarinnar með níu stig að loknum sjö umferðum en Bjarni er löglegur með KA í næsta leik liðsins gegn Grindavík á laugardaginn á Greifavellinum á Akureyri.
Magni situr á botni Inkasso-deildarinnar með tvö stig eftir sex umferðir. Þetta er mikil blóðtaka fyrir liðið sem er enn í leit að sínum fyrsta sigri í deildinni.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir