Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   lau 12. júní 2021 19:50
Elvar Geir Magnússon
Logi Ólafs: Þú áttar þig á því að Íslandsmótið lá niðri?
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH tapaði sínum þriðja leik í röð þegar liðið beið lægri hlut gegn Víkingum í Pepsi Max-deildinni í dag. FH-ingum gekk erfiðlega að skapa sér færi í Fossvoginum og uppskera liðsins alls ekki eftir væntingum.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  0 FH

„Við verðum að gera betur í komandi leikjum, það er alveg ljóst. Við erum ryðgaðir og langt síðan við spiluðum en það er engin afsökun," sagði Logi Ólafsson, þjálfari FH, eftir leikinn.

Er hann bjartsýnn á að FH nái vopnum sínum og nái að klífa upp töfluna?

„Já ég er það," sagði Logi og sagði að ákvarðanatökur FH á síðasta þriðjungi hafi ekki verið nægilega góðar í leik dagsins.

Logi var spurður út í að FH hefði ekki náð að vinna leik síðan 17. maí.

„Þú getur talið daga, þú áttar þig á því að Íslandsmótið lá niðri? Takturinn var ágætur á liðinu í byrjun móts en nú hafa komið þrír tapleikir, leiðin hlýtur að liggja upp á við."
Slapp
banner
banner