Atlético Madríd er á eftir spænska vinstri bakverðinum Marc Cucurella, sem er á mála hjá Chelsea á Englandi. Þetta segir blaðamaðurinn Matteo Moretto.
Chelsea er reiðubúið að selja Cucurella í sumarglugganum en félagið hefur sett 50 milljóna evra verðmiða á leikmanninn.
Cucurella, sem er 27 ára gamall, kom til Chelsea frá Brighton árið 2022 og verið lykilmaður í liðinu.
Spænski landsliðsmaðurinn gæti farið aftur til heimalandsins í sumar, en Moretto segir Atlético leiða baráttuna.
Einnig kemur fram að Atlético sé í bestu stöðunni um suður-kóreska sóknartengiliðinn Lee Kang-In sem er á mála hjá Paris Saint-Germain.
Það má því búast við því að sumarglugginn verði spennandi hjá Atlético sem komst alla leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í ár.

