Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 12. júní 2026 15:30
Elvar Geir Magnússon
Fimm staðreyndir um hetju Kóreumanna - Fékk undanþágu frá herskyldu
Hwang In-beom  skoraði frábært mark.
Hwang In-beom skoraði frábært mark.
Mynd: EPA
Hann var nálægt því að missa af mótinu.
Hann var nálægt því að missa af mótinu.
Mynd: EPA
Hwang In-beom var hetja Suður-Kóreu þegar liðið vann endurkomusigur 2-1 gegn Tékklandi á HM. Þessi 29 ára miðjumaður Feyenoord skoraði geggjað jöfnunarmark og lagði svo upp sigurmarkið.

Litlu mátti muna að In-beom yrði ekki með á mótinu en hér má sjá fimm staðreyndir um leikmanninn.

Hann fékk undanþágu frá herskyldu
Hann var á leið í herinn árið 2018 en eftir að Suður-Kórea vann fótboltakeppni Asíuleikanna fengu leikmennirnir undanþágu frá herskyldu.

Hann er flakkari
Hann fæddist í Daejeon í Suður-Kóreu og þar hófst ferill hans. Hann hafnaði tilboði frá Hamborg í Þýskaland og samdi við Vancouver Whitecaps í Kanada. Hann lék síðan fyrir Rubin Kazan í Rússlandi, Olympiakos í Grikklandi, Rauðu stjörnuna í Serbíu og svo Feyenoord í Hollandi.

Hann á þátt í heimsmeti
Þegar hann var í Rauðu Stjörnunni í Belgrad 2023 skoraði hann í sigri gegn Mladost Lucani. Lið hans lék þar 122. heimaleik sinn í röð í serbnesku deildinni án þess að tapa og sló heimsmet sem Real Madrid setti 1965.

Taktmælirinn á miðjunni
Hollenskir fjölmiðlar kalla hann 'taktmælinn' á miðju Feyenoord. Hann lætur taktinn slá, stýrir spilinu fyrir framan vörnina og er jafnvígur með hægri og vinstri fæti. Hann er líka óhræddur við að henda sér í tæklingar.

Hann missti næstum því af mótinu
Hwang varð fyrir liðbandameiðslum í hægri ökkla í 2-1 sigri Feyenoord gegn Excelsior í mars og lék ekki meira með hollenska liðinu á tímabilinu. Hann náði að jafna sig í tæka tíð og lék í vináttulandsleikjum fyrir mótið.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp