Fjöldi sæta voru auð á leik Suður-Kóreu og Tékklands, öðrum leik HM, sem fram fór síðustu nótt. Fjölmiðlar tala um að þetta sé mjög niðurlægjandi fyrir FIFA.
Mikið hefur verið fjallað um gríðarlega hátt miðaverð á HM og var talsvert frá því að vera uppselt þegar Suður-Kórea vann 2-1 sigur á leikvangnum í Guadalajara í Mexíkó.
Mikið hefur verið fjallað um gríðarlega hátt miðaverð á HM og var talsvert frá því að vera uppselt þegar Suður-Kórea vann 2-1 sigur á leikvangnum í Guadalajara í Mexíkó.
Mirror segir að í gær hafi enn verið hægt að nálgast um 180.000 miða á leiki keppninnar í gegnum miðasölukerfi FIFA. Þar á meðal hafi 4.400 miðar verið til sölu á leik gestgjafa Bandaríkjanna í fyrsta leik þeirra gegn Paragvæ.
Miðaverð hefur verið lækkað af FIFA til að reyna að koma í veg fyrir mörg auð sæti en það hefur verið harðlega gagnrýnt hversu dýrt er á leikina. Fjölmargir áhugasamir fótboltaáhugamenn hafa hætt við að mæta á leiki þar sem það er of dýrt.
Look at all the empty seats for just the second game of the World Cup…?
— Now Football (@Nowfootball) June 12, 2026
So disappointing to see???? pic.twitter.com/lCV000BDX8
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



