Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 12. júlí 2021 12:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guy Smit spilar í leiknum mikilvæga - „Allt klárt"
Markvörðurinn Guy Smit.
Markvörðurinn Guy Smit.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er sannkallaður sex stiga leikur í Breiðholtinu í kvöld þegar heimamenn í Leikni fá ÍA í heimsókn í Pepsi Max-deildinni.

Meiðslalistinn hjá Leikni hefur minnkað fyrir leikinn. Markvörðurinn Guy Smit fór meiddur af velli í síðasta leik, sem og miðjumaðurinn Daníel Finns Matthíasson. Þeir eru báðir klárir í slaginn í kvöld sem eru góð tíðindi fyrir Breiðhyltinga.

Þá eru Brynjar Hlöðversson og Sævar Atli Magnússon sem misstu af leiknum gegn Blikum klárir í slaginn.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, sagði frá því í samtali við Ljónavarpið.

Dagur Austmann og Sólon Breki Leifsson eru einnig komnir af meiðslalistanum.

„Það er allt klárt," sagði Sigurður en aðeins Ágúst Leó Björnsson er á meiðslalistanum.

Hægt er að horfa á viðtalið sem var tekið við Sigga hér fyrir neðan.

mánudagur 12. júlí

Pepsi Max-deild karla
19:15 Leiknir R.-ÍA (Domusnovavöllurinn)
19:15 KR-Keflavík (Meistaravellir)


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner