Láki Árna: Aðallega þið fréttamenn sem finnst þetta ógeðslega skemmtilegar fréttir
Auglýsing

Þorlákur Árnason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorlákur Árnason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var bara hörkuleikur, jafn leikur við mjög erfiðar aðstæður. Það var miklu meira rok en maður átti von á inn á vellinum, Á endanum eru þetta sanngjörn úrslit, við fáum tvö dauðafæri á síðustu mínútunum en ég held að þó maður vilji vera frekur og segja þrjú stig að þetta hafi verið sanngjörn úrslit.“ Sagði Þorlákur Árnason þjálfari Þórs Akureyri um leikinn og niðurstöðuna í 1-1 jafntefli lærisveina hans gegn Grindavík í Grindavík fyrr í kvöld.
Lið Þórs hefur náð í 12 af 14 stigum sínum á heimavelli þetta sumarið og er í raun með fullt hús stiga þegar eingöngu er litið á heimaleiki. Á sama tíma eru stigin aðeins tvö á útvelli og stöðugleiki liðsins virðist ekki mikill. Hvað skýrir þennan mikla mun á liðinu heima og úti?
„Ég held að það séuð aðallega þið fréttamenn sem finnst þetta ógeðslega skemmtilegar fréttir. Við töpuðum ekki á útivelli og tveir af þessum sex útileikjum sem við höfum spilað höfum við ekki tapað og líka út af því að við erum ótrúlega sterkir heima þá er þetta auðvitað fréttaefni. Það er mjög óvenjulegt að Þór vinni alla leiki á heimavelli. Við erum lítið að spá í öðru en að vera bara í efri hlutanum og vonum að þetta stig telji þegar talið verður upp úr kössunum í haust.“
Merkja má á orðum Þorláks að hann sé frekar að horfa í frammistöður frekar en úrslit á þessum tímapunkti og spurði fréttaritari hann út í það.
„Já, allavega í dag þá er bara góður bragur á liðinu. Við erum að fá Akseli til baka Finnann í vörninni sem er búinn að vera lengi frá sem við höfum saknað mikið. Maður sá það í dag hvað hann gerir mikið fyrir liðið. Mér finnst liðið vera á uppleið og vona að það haldi áfram. Það eru fimm leikir núna á næstu tveimur og hálfri viku og mjög þétt spilað fram að verslunarmannahelgi.“
Sagði Láki en allt viðtalið má sjá hér að ofan.