Fotbolti.net
12.08.23 - 10:22
Ívan Guðjón Baldursson

Chelsea að bjóða 115 milljónir punda fyrir Caicedo

Chelsea að bjóða 115 milljónir punda fyrir Caicedo
Canon

Mynd: Getty Images

Powerade

BBC er búið að taka saman slúður dagsins og birtist það hér í boði Powerade. Moises Caicedo, Romeo Lavia, Lucas Paquetá, Tyler Adams, Joao Cancelo og Amadou Onana koma meðal annars fyrir í slúðri dagsins.


Chelsea er tilbúið til að hækka tilboð sitt í Moises Caicedo, 21 árs miðjumann Brighton, og mun bjóða yfir 110 milljónir punda. (Guardian)

Tilboð Chelsea gæti verið metfé fyrir breskt knattspyrnufélag. Talið er að félagið ætli að bjóða 115 milljónir í heildina. (Sky Sports)

Liverpool reyndi við Caicedo eftir að hafa fengið grænt ljós frá umboðsteymi leikmannsins, en leikmaðurinn skipti um skoðun á síðustu stundu og vildi bara fara til Chelsea. (Mirror)

Chelsea er nálægt því að ganga frá kaupum á Romeo Lavia, 19 ára miðjumanni sem féll niður um deild með Southampton á síðustu leiktíð. Chelsea vill kaupa bæði Lavia og Caicedo. (Star)

Liverpool hefur einnig áhuga á Lavia og hefur verið að berjast við Chelsea um báða miðjumennina. (Sky Sports)

Chelsea hefur hætt við kaup á Tyler Adams, 24 ára miðjumanni Leeds United og bandaríska landsliðsins sem er metinn á um 20 milljónir. (Sky Sports)

Manchester City undirbýr endurbætt tilboð í Lucas Paquetá, 25 ára landsliðsmann Brasilíu, eftir að West Ham hafnaði 70 milljóna opnunartilboði Englandsmeistaranna. (Football Insider)

West Ham vill fá 90 milljónir punda fyrir brasilíska miðjumanninn sinn. (Telegraph)

Joao Cancelo, 29 ára bakvörður Man City, er efstur á óskalista Barcelona eftir að Spánarmeistararnir seldu Ousmane Dembélé til PSG. (Sport)

Manchester United er að íhuga að bjóða í Amadou Onana, 21 árs miðjumann Everton og belgíska landsliðsins. (Daily Mail)

Aston Villa bíður eftir svari frá Galatasaray eftir að hafa lagt fram lánstilboð í Nicoló Zaniolo með kaupmöguleika. (Fabrizio Romano)

Arsenal vill fá 30 milljónir punda til að selja japanska landsliðsmanninn Takehiro Tomiyasu, sem er 24 ára gamall og hefur verið að vekja áhuga frá Inter. (Sport Witness)

Sunderland vonast til að halda hinum 16 ára gamla Chris Rigg þrátt fyrir áhuga frá Man United. (Mirror)

Sheffield United er búið að ná samkomulagi við Coventry um að kaupa Gustavo Hamer, 26 ára miðjumann, fyrir 15 milljónir punda. (Telegraph)

Everton er enn í viðræðum við Alex Iwobi um nýjan og endurbættan samning, einu ári eftir að viðræðurnar hófust. (Liverpool Echo) 

Chelsea að bjóða 115 milljónir punda fyrir Caicedo
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea að bjóða 115 milljónir punda fyrir Caicedo
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea að bjóða 115 milljónir punda fyrir Caicedo
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.