„Við erum ekki búnir að vinna í 5 leiki í röð. Tvö jafntefli og þrjú töp. Þetta voru mikilvæg þrjú stig í dag.“ sagði Ian Jeffs eftir góðan og sætan 4-3 sigur Þróttara á Selfossi í dag.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 4 - 3 Selfoss
Þið byrjið illa og fáið mark á ykkur snemma en síðan bætið þið við tveimur mörkum og síðan einu örðu í byrjun síðari hálfleiks, þú hlýtur að vera ánægður með svarið.
„Ég er mjög ánægður með það. Eftir fyrsta markið sem við fáum á okkur á móti Njarðvík brotnum við bara niður og fáum 4 mörk á okkur á hálfltíma kafla. En í dag kom gott svar, jákvætt svar. Menn stigu upp en brotnuðu ekki. En mér fannst samt þegar markið kom að við vorum með yfirhöndina í leiknum þá. Mér fannst það mark koma í gegn gangi leiksins. En bara flott svar og ég er bara virkilega ánægður með karakterin í dag.“
Afhverju náið þið að halda þetta út í dag en fáið ekki á ykkur þessi mörk sem þið fenguð á ykkur á móti Njarðvík og ÍA?
„Ég er ekki alltaf með svarið á mér. Þetta var bara hræðilegur fyrsti hálftíminn á móti Njarðvík. Við vorum ekki tilbúnir og okkur var refsað. Njarðvík eru með gæða sóknarmenn og þeir drápu okkur þarna fyrsta hálftímann. En eftir það náðum við að vinna okkur inn í leikinn og eftir þann kafla var þetta bara góður leikur hjá okkur. En í dag vorum við mættir frá fyrstu mínútu. Við fengum mark í andlitið en þetta voru allt önnur viðbrögð.“
Hvernig fannst þér Sergi spila í dag sem var jafnframt að spila sinn fyrsta leik fyrir Þrótt í sumar?
„Mér fannst hann standa sig vel. Hann kom til okkar á miðvikudagskvöldið, mjög seint. Síðan kom hann á æfingu til okkar á fimmtudaginn og er búinn að æfa með okkur tvisvar. Honum var bara hent beint út í djúpu laugina í dag. Hann var bara fínn. Hann var dálítið þreyttur þarna í restina en ég er mjög ánægður með hans frammistöðu í dag.“
Þið eigið Þór næst fyrir norðan, hvernig lýst þér á það verkefni?
„Bara erfiður leikur. Þór er með gott lið og eru sterkir á heimavelli. Við þurfum að mæta þangað með sama karakter, vilja og baráttu sem við vorum með í dag. Ef við gerum það þá getum við unnið öll lið í þessrai deild.“ sagði Ian Jeffs, þjálfari Þróttar, eftir 4-3 sigur í dag gegn Selfossi.
Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.























