Man Utd búið að setja sig í samband við Bayern


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Manchester United er búið að setja sig í samband við Þýskalandsmeistara FC Bayern til að ræða um franska varnarmanninn Benjamin Pavard.
Erik ten Hag hefur miklar mætur á Pavard sem á aðeins eitt ár eftir af samningi við Bayern og hefur sagt við félagið að hann ætli ekki að gera nýjan samning.
Pavard vill takast á við nýja áskorun á ferlinum eftir fjögur ár og 162 leiki með Bayern.
Pavard er 27 ára gamall og á 49 landsleiki að baki fyrir Frakkland. Hann hefur unnið alla mögulega titla, nema EM landsliða, á síðustu árum bæði með Bayern og franska landsliðinu.




