Lionel Messi, skærasta stjarna Barcelona á Spáni, er ekki viss um að Barcelona hafi lagt allt í sölurnar til að fá Neymar frá Paris Saint-Germain í sumar.
Barcelona og PSG voru í viðræðum í sumar um Neymar en aðeins tvö ár eru frá því hann fór frá spænska félaginu til Frakklands.
Neymar er ósáttur í París en félögin komust ekki að samkomulagi og varð því ekkert úr skiptunum.
Messi og Neymar eru góðir félagar en argentínski snillingurinn vildi fá Neymar aftur til félagsins.
„Ég hefði verið meira en til í að fá Neymar til Barcelona og ég veit í hreinskilni ekki hvort Barcelona hafi reynt allt til að fá hann en ég veit að það er erfitt að díla við PSG," sagði Messi.
„Ég er ekki vonsvikinn. Við erum með frábæran hóp sem er með frábæra menn í öllum stöðum, með eða án Neymar," sagði hann í lokin.
Athugasemdir