12.09.20 - 11:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fylkir segist hafa tekið tilboði Strømgodset í Valdimar

Valdimar í leik með Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valdimar í leik með Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir hefur staðfest að Valdimar Þór Ingimundarson sé á leið til Strømgodset í Noregi.
Það <a href="https://fotbolti.net/news/11-09-2020/valdimar-a-leid-til-stromgodset" target="_blank">greint frá þessu í gær</a> og núna hefur Árbæjarfélagið staðfest þetta.

„Það er með mikilli eftirsjá og söknuði að við þurfum að tilkynna að Fylkir og Strømsgodset IF hafa náð saman um félagaskipti Valda," segir í tilkynningu Fylkis.
Valdimar hefur verið frábær í liði Fylkis á þessu tímabili en hann hefur verið einn besti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar það sem af er. Hann hefur skorað átta deildarmörk.
Hjá Strømgodset hittir hann fyrrum liðsfélaga sinn, Ara Leifsson, sem er á mála hjá félaginu. Strømgodset er í ellefta sæti í efstu deild í Noregi eftir sextán umferðir.
„Um leið og við samgleðjumst Valda að vera kominn í atvinnumennsku sem hann hefur dreymt um þá viljum þakka honum fyrir framlag hans til Fylkis á undanförnum árum og bjóðum velkominn heim á nýjan leik þegar ævintýrinu lýkur."
Fylkir er í þriðja sæti Pepsi Max-deildarinnar eins og er en liðið mætir KA á morgun.