Gallagher á lán til Man Utd? - Villa hefur áhuga á Johnson - Tottenham hefur hætt við að reyna að fá Semenyo
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
Kiddi Jóns framlengir - Var í viðræðum við annað félag
Jóladagatalið: Elínborg gaf viðtal í sturtu eftir leik
   lau 12. september 2020 16:30
Gunnar Karl Haraldsson
Siggi Raggi: Mjög ánægðir með liðið í dag
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík vann góðan 3-1 sigur á ÍBV á Hásteinsvelli í dag. Keflavík er þar með komið upp í 2. sæti deildarinnar með 30 stig og eiga leik til góða.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  3 Keflavík

„Í fyrsta lagi gaman að koma hingað. Margir í Eyjaliðinu sem ég þjálfaði og Eysteinn þjálfaði í 2. flokki. Alltaf gaman að koma til Eyja og erfitt að spila hérna, þannig við erum ánægðir með liðið í dag og spiluðum mjög vel í dag og skoruðum þrjú mörk á mjög gott lið. Þannig við förum sáttir heim," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur.

Keflavík spilaði vel í dag og uppskar þrjú góð mörk í leiknum sem skilaði þeim öflugum sigri í toppbaráttunni.

„Þetta var erfiður leikur, tvö góð lið að mætast. Það eru gæði í leikmannahópum hjá báðum liðum. ÍBV voru alltaf líklegir líka. Við erum með frábært sóknarlið og erum búnir að skora að meðaltali meira en þrjú mörk í leik í sumar. Ég held að það hafi hjálpað okkur í dag".

Nacho Heras fór meiddur af velli eftir höfuðhögg undir lok fyrri hálfleiks og fór útaf á sjúkrabörum.

„Hann fékk höfuðhögg og það blæddi og hann var aðeins vankaður og við eigum eftir að sjá hvað hann verður lengi að jafna sig á því."
Athugasemdir
banner