Fotbolti.net
12.09.25 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Ísak Bergmann spáir í 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Enska úrvalsdeildin byrjar aftur eftir landsleikjahlé í hádeginu á morgun.

Besti leikmaður Íslands í landsleikjunum var Ísak Bergmann Jóhannesson en hann spáir í leikina sem eru framundan.
Gæti orðið okkar mikilvægasti maður á næstu árum
TENGT EFNI

Gæti orðið okkar mikilvægasti maður á næstu árum

Arsenal 3 - 1 Nottingham Forest (11:30 á morgun)
Arsenal vinnur þetta, þeir eru sterkir á heimavelli og ef að Postecoglou verður með sína háu línu þá verður þetta veisla fyrir Arsenal.

Bournemouth 2 - 2 Brighton (14:00 á morgun)
Tvö skemmtileg lið og þetta verður skemmtilegur og opinn leikur, mæli með að horfa á þennan leik.

Crystal Palace 1 - 0 Sunderland (14:00 á morgun)
Þetta verður hins vegar mjög lokaður leikur. Palace með mjög góða vörn og halda hreinu, Mateta setur svo eitt.

Everton 2 - 1 Aston Villa (14:00 á morgun)
Grealish á móti gamla liðinu sínu og verður á eldi, hann er búinn að byrja tímabilið vel og heldur því áfram.

Fulham 2 - 0 Leeds (14:00 á morgun)
Leeds verða í basli á tímabilinu og Fulham eru með meiri gæði, þeir klára þetta 2-0.

Newcastle 3 - 0 Wolves (14:00 á morgun)
Newcastle mæta vel peppaðir í að ná sínum fyrsta sigri á tímabilinu og keyra yfir Wolves. Wolves geta ekkert og tapa þessu easy.

West Ham 1 - 2 Tottenham (16:30 á morgun)
Londonslagur og það verða læti, mögulega eitt rautt spjald. Thomas Frank sækir þessa þrjá punkta.

Brentford 1 - 2 Chelsea (19:00 á morgun)
Brenford verða í gömlu góðu low blokkinni og munu gera það vel en Chelsea vinnur þetta á endanum með gæðin sem þeir eru með.

Burnley 0 - 4 Liverpool (13:00 á sunnudag)
Easy win fyrir Liverpool, Wirtz verður með sýningu.

Man City 3 - 1 Man Utd (15:30 á sunnudag)
Stærsti leikur umferðarinnar og verður mjög opinn og skemmtilegur, United vinna XG bardagann en City og Haaland klára þetta.

Fyrri spámenn:
Martin Hermanns (5 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Mætir Postecoglou með sína háu línu?

Mætir Postecoglou með sína háu línu?

Canon

Mynd: EPA

Grealish mætir gömlu félögunum.

Grealish mætir gömlu félögunum.

Canon

Mynd: Everton

Ísak spáir því að Haaland gangi frá nágrannaslagnum.

Ísak spáir því að Haaland gangi frá nágrannaslagnum.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Liverpool101
10Newcastle101
11Chelsea000
12Fulham000
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.