Fotbolti.net
12.10.19 - 14:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sporting íhugar að nefna leikvang sinn eftir Ronaldo

Sporting íhugar að nefna leikvang sinn eftir Ronaldo
Canon

Mynd: Getty Images

Sporting Lisbon íhugar að nefna leikvang sinn eftir Cristiano Ronaldo þegar hann leggur skóna á hilluna.

Ronaldo kom fyrst fram á sjónarsviðið hjá félaginu áður en hann gekk í raðir Manchester United.
„Við íhugum þetta alvarlega," sagði Frederico Varandas, forseti Sporting við Tuttosport.

„Cristiano er og mun alltaf vera eitt af því merkilegasta sem kennt verður við Sporting. Hann er besti Portúgali allra tíma og einn besti leikmaður í sögu íþróttarinnar. Við erum einnig með tengingar við hann í akademíu félagsins en hann er mikil fyrirmynd fyrir unga leikmenn sem vilja ná langt.".

Leikvangur Sporting heitir í dag Jose Alvalede Stadium í höfuðið á manninum sem stofnaði félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.