12.10.20 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
West Ham að borga vel fyrir Benrahma

Benrahma í leik með Brentford.

Mynd: Getty Images

Benrahma í leik með Brentford.

Mynd: Getty Images
West Ham færist nær kaupum á kantmanninum Said Benrahma frá Brentford samkvæmt fjölmiðlamanninum David Ornstein.
West Ham er búið að ná samkomulagi við Brentford um kaupverð upp að allt að 30 milljónum punda. Leikmaðurinn fer líklega í læknisskoðun næsta miðvikudag.
Félagaskiptaglugginn í Englandi lokaði í síðustu viku en félög í ensku úrvalsdeildinni geta enn verslað við félög í neðri deildum Englands til 16. október.
Benrahma er 25 ára gamall kantmaður frá Alsír sem átti frábært tímabil með Brentford á síðustu leiktíð.
Crystal Palace hefur einnig haft áhuga á leikmanninum síðustu vikur.