12.10.20 - 06:00
Magnús Már Einarsson
West Ham reynir að fá Dawson

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham er í viðræðum við Watford um kaup á miðverðinum Craig Dawson.
Félagaskiptaglugginn í Championship deildinni lokar á föstudag og West Ham vonast til að fá Dawson í sínar raðir í vikunni.

David Moyes, stjóri West Ham, hefur verið í leit að miðverði undanfarnar vikur.
Félagið hefur reynt að fá James Tarkowski (Burnley), Shane Duffy (Brighton), Joe Rodon (Swansea) og Duje Caleta-Car (Marseille) en án árangurs.
Moyes hefur nú ákveðið að reyna að fá hinn þrítuga Dawson en hann kom til Watford frá WBA í fyrra.