Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. nóvember 2020 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Koke: Suarez passar inn í liðið eins og hanski á hendi
Mynd: Getty Images
Luis Suarez gekk í raðir Atletico Madrid frá Barcelona í haust. Hann hefur skorað fimm mörk til þessa fyrir félagið.

Liðsfélagi Suarez og fyrirliði Atletico, Koke, er mjög ánægður með innkomu Suarez.

„Róttækar breytingar hafa orðið á leik okkar. Að hafa Suarez í liðinu gefur leikmönnum eins og Joao Correa og Marcos Llorente frjálsræði í sínum stöðum," sagði Koke.

„Suarez passar inn í liðið okkar eins og hanski á hendi," bætti Koke við.
Athugasemdir
banner
banner