Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. nóvember 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Yfirlýsing frá Reyni: Skoða kosti og galla sameiningar við Víði
Reynismenn fagna mark í 3. deildinni í sumar.
Reynismenn fagna mark í 3. deildinni í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir sameiningarviðræður félagsins við Víði Garði í meistaraflokki karla.

Reynir fór upp í 2. deildina í sumar á meðan Víðir féll úr 2. deild niður í 3. deild en Fótbolti.net greindi frá viðræðum um sameiningu í dag.

Stjórn Reynis hefur útilokað sameiningu fyrir næsta tímabil en hefur samþykkt að skoða kosti og gallar sameininga félaganna.

Fréttatilkynning frá Reyni Sandgerði
Knattspyrnudeild Reynis fékk á dögunum formlega beiðni frá Knattspyrnufélaginu Víði um sameiningu félaganna. Málið var tekið fyrir á fundi stjórnar og var niðurstaðan sú að stjórn vill fara sér hægt í þessu stóra máli og útilokar sameiningu fyrir næsta tímabil.

Á fundi stjórnar í gær, miðvikudaginn 11. nóvember, samþykkti stjórn Ksd. Reynis að skoðaðir verði kostir og gallar sameiningar félaganna, án allra skuldbindinga, og hefur það verið tilkynnt stjórn Víðis.

Stjórn ksd. Reynis leggur hins vegar til aukið samstarf í yngri flokkum sem fælist í því að allt starf yngri flokkanna færi undir einn hatt, þ.e. sameiginlegt unglingaráð verði myndað og reksturinn verði sameinaður.

Stjórn ksd. Reynis vinnur nú hörðum höndum að því að ganga frá leikmannamálum fyrir baráttuna í 2. deild á komandi sumri og er allt útlit fyrir að leikmannakjarninn frá því á liðnu tímabili haldist óbreyttur að mestu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner