Leik Manchester United gegn Charlton var flautaður af eftir að Charlotte Kerr, leikmaður Charlton, meiddist illa.
Kerr lenti í samstuði þegar Charlie Devlin kom United yfir eftir 11 mínútna leik.
Eftir að leikurinn hafði verið stopp í um klukkustund ákvað dómarinn að flauta hann af.
Iain Sealey var að fjalla um leikinn en hann skrifar að Kerr hafi orðið fyrir rifbeinsmeiðslum og átt erfitt með að anda. Hún fékk súrefni hjá læknateymi Manchester United, en þegar það kláraðist og það var ekkert til hjá Charlton. Það er í reglum að hafa súrefni til staðar á bekknum.
Kerr yfirgaf völlinn í sjúkrabíl, en það var ekki sjúkrabíll á vellinum á meðan leiknum stóð.
Þetta var leikur í Championship-deildinni á Englandi og var þetta toppslagur. United er á toppnum með tveimur stigum meira en Charlton. Engar upplýsingar hafa borist af því hvenær leikurinn verður spilaður aftur.
United’s medical staff. A private ambulance was called which arrived around 35 minutes after the injury occurred. In that time all of United’s medical oxygen was used. Charlton did not have any oxygen of their own on the sideline. Under league rules, medical oxygen is required
— Iain Sealey (@Skiddles1985) January 13, 2019
We will also bring you news on Charlotte's condition as soon as we have more information. Thanks for everyone's well wishes #cafc
— Charlton Athletic Women (@CAFCWomen) January 13, 2019
Athugasemdir