Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 13. janúar 2020 22:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Valverde rekinn frá Barcelona (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Ernesto Valverde hefur verið rekinn frá Barcelona. Þetta var staðfest á Twitter síðu félagsins.

Fréttir frá Spáni voru á þann veg að Barcelona hefði ætlað að klára starfslokasamning sinn við Valverde í fyrramálið en sá fréttaflutningur var rangur. Valverde tekur poka sinn þrátt fyrir að vera með Barcelona í toppsæti La Liga á þessum tímapunkti.

Hann stýrði liðinu til sigurs í La Liga á sínum fyrstu tveimur leiktíðum með félagið og þá vann hann einnig spænska konungsbikarinn og spænska ofurbikarinn sem stjóri katalónska risans.

Síðasti leikur sem Valverde stýrði Barcelona var gegn Atletico Madrid í spænska Ofurbikarnum í síðustu viku. Atletico kom til baka og sigraði þann leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner