Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 13. febrúar 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Ighalo verður í hóp á mánudag þó hann hafi ekki æft með liðinu
Mynd: Getty Images
Odion Ighalo, framherji Manchester United, verður í leikmannahópnum gegn Chelsea á mánudag þrátt fyrir að hann hafi ekki ennþá mætt á æfingasvæði félagsins.

Ighalo kom til Manchester United á láni undir lok félagaskiptagluggans frá Shanghai Shenhua í Kína.

Vegna hræðslu við útbreiðslu kórónaveirunnar var ákveðið að Ighalo myndi ekki mæta á æfingasvæði Manchester United á Carrington fyrstu tvær vikur sínar á Englandi og að hann myndi ekki fara með liðin í æfingaferð til Marbella á Spáni.

Nígeríumaðurinn hefur því æft einn í Taekwondo sal undanfarið og unnið í að komast í gott form.

Á morgun verða tvær vikur liðnar síðan Ighalo gekk í raðir United en hann mun æfa með liðinu á Carrington um helgina og vera í hópnum gegn Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner