Það gengur ekki vel hjá Englandsmeisturum Liverpool um þessar mundir.
Liverpool hefur aðeins tekist að vinna tvo af síðustu tíu deildarleikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool tapaði 3-1 fyrir Leicester á útivelli í dag. Liverpool tók 1-0 forystu í leiknum á 67. mínútu en endaði á því að tapa leiknum eftir mikið hrun á síðustu tíu mínútum venjulegs leiktíma.
Mark Liverpool í leiknum var býsna fallegt. Mohamed Salah skoraði með flottu skoti eftir stórkostlega sendingu frá Roberto Firmino. Sendingin var hreint út sagt augnakonfekt og afgreiðslan ekki síður falleg.
Markið má sjá hérna. Því miður fyrir Liverpool skipti þetta mark ekki miklu máli í lokin.
Alveg vonlaus þessi Firmino 🤩
— Gummi Ben (@GummiBen) February 13, 2021
Athugasemdir