Chris Hughton skiptir um starf og tekur við Gana (Staðfest)

Chris Hughton.

Mynd: Getty Images

Chris Hughton.

Mynd: Getty Images
Chris Hughton hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari Gana en þetta var opinberað í gærkvöldi.
Þessi 64 ára gamli þjálfari hefur verið að vinna sem tæknilegur ráðgjafi fyrir fótboltasambandið í Gana frá því í febrúar í fyrra, en núna skiptir hann um starf.
Hann tekur við starfi landsliðsþjálfara af Otto Addo sem hætti með liðið eftir HM í Katar.
Gana endaði á botni riðils síns á HM með eitt stig, en liðið var í riðli með Portúgal, Úrúgvæ og Suður-Kóreu.
Hughton hefur mikla reynslu af þjálfun en hann hefur til að mynda stýrt Brighton, Nottingham Forest og Newcastle á sínum þjálfaraferli.