KF fær spænskan reynslubolta sem þekkir til á Íslandi (Staðfest)

Mynd: Raggi Óla

Mynd: Raggi Óla
KF tilkynnti í gær að spænski varnarmaðurinn Fransisco Eduardo Cruz Lemaur, eða einfaldlega bara Edu Cruz, væri genginn í raðir félagsins og mun leika með liðinu í 2. deild í sumar.
Edu er fæddur árið 1987 og er reynslumikill leikmaður. Hann hefur áður spilað á Íslandi, lék með Grindavík tímabilin 2016 og 2017, seinna tímabilið lék hann tíu leiki í efstu deild.

„Edu mætir til landsins 1. Apríl og verður þá klár strax í átökin með KF. Við bjóðum Edu velkominn til Fjallabyggðar!" segir í færslu KF.
KF endaði í 8. sæti deildarinnar í fyrra á lokaári Slobodan Milisic með liðið. Fyrrum markvörður liðsins, Halldór Ingvar Guðmundsson, tók við þjálfun liðsins í vetur.