Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 13. maí 2019 09:05
Elvar Geir Magnússon
Hughton rekinn frá Brighton (Staðfest)
Brighton telur að Chris Hughton sé kominn á endastöð með liðið og hefur hann verið rekinn.

Helsta ástæðan er slæmt gengi á árinu 2019 en Brighton lauk ensku úrvalsdeildinni tveimur stigum frá falli.

„Án nokkurs vafa hefur þetta verið ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka sem stjórnarformaður Brighton & Hove Albion. En miðað við hvernig spilamennskan hefur verið seinni hluta tímabils varð þetta niðurstaðan," segir Tony Bloom, stjórnarformaður Brighton.

„Við náðum aðeins þremur sigrum í 23 úrvalsdeildarleikjum og tel ég að þetta sé rétti tíminn fyrir breytingar."

Hughton tók við Brighton í desember 2014 og kom liðinu upp í úrvalsdeildina sumarið 2017.

„Chris mun aldrei gleymast hjá félaginu og er einn besti og virtasti stjóri sem félagið hefur verið með," segir Bloom.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
12 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
18 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner