Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 13. maí 2022 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Logi Hrafn með brotið bátsbein en gæti spilað á sunnudag
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Logi Hrafn Róbertsson varð fyrir meiðslum á hendi þegar FH mætti Breiðabliki þann 1. maí. Logi hefur ekki spilað síðan en FH-ingar vonast til að Logi verði klár í slaginn þegar FH tekur á móti ÍBV á sunnudag.


Eftir myndatöku kom í ljós að hann er með brotið bátsbein og verður hann í gifsi út mánuðinn.

„Hann verður vonandi tilbúinn í næsta leik en það er ekki 100% öruggt," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, eftir leik liðsins gegn KA á miðvikudag.

FH er í 8. sæti Bestu deildarinnar að fimm umferðum loknum.
Óli Jó: Eins svekkjandi og fótboltaleikur getur orðið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner